Tekið er við pöntunum í síma 450-9000 og í netfanginu fisherman@fisherman.is

Okkur er annt um umhverfi okkar

Fisherman starfar í litlu sjávarþorpi á Vestfjörðum í nálægð við hreina náttúru og gjöful fiskimið. Það er okkur því mikið kappsmál að virða og vernda það umhverfi sem við byggjum lífsviðurværi okkar á til framtíðar. 

Galdurinn á bakvið hágæða hráefni er hrein náttúra og rétt meðhöndun hráefnis. Starfsfólk Fisherman hefur langa reynslu af fiskverkun, enda margir fæddir og uppaldnir í vestfirskum sjávarþorpum.

Fisherman hefur starfað í rúm 20 ár og alla tíð lagt mikla áherslu á að virða og vernda umhverfi okkar. Við erum stöðugt að vinna að því og finna leiðir til að gera rekstur okkar og vinnslu umhverfsivænni og tryggja hámarksgæði afurða okkar með lágmarks vistspori.

Það þarf heilt þorp til að framleiða hágæða sjávarfang.

Í sjávarþorpinu sem Fisherman starfar í hefur lengi verið lögð mikil áhersla á umhverfismál. Bæði á meðal bæjarbúa og fyrirtækja á svæðinu, ásamt sveitafélagi. Til að mynda er allt rusl flokkað og endurunnið. Grunnskólinn er með grænfánann, sem vottar umhverfisvænt skólastarf og bryggjan hefur verið með Bláfánann frá árinu 2008. Bláfáninn er alþjóðleg umhverfisvottun sem er veitt smábátahöfnum sem stuðla að verndun strandsvæða og lífríki hafsins.

Fiskur er með lágt kolefnisspor.

Fiskur er hrein náttúruafurð sem hefur lágt kolefnisspor miða við marga aðra matvælaframleiðslu. Fiskurinn sem við vinnum er með MCS vottun um sjálfbærni og virðingu við náttúruna. Á Suðureyri eru aðeins gerðir út minni bátar sem veiða á línu og handfæri. Staðsetning okkar í nálægð við gjöful fiskimið lágmarkar einnig alla olíunotkun.

Sá fiskur sem við fáum úr fiskeldi á Vestfjörðum er ASC umhverfisvottaður sem er ein strangasta umhverfisvottun heims. Við erum því afar stolt af því að bjóða upp á bæði ASC og MCS umhverfisvottaðan fisk í vöruframboði Fisherman.

Hágæða handverk á Vestfjörðum.

Í reykhúsi okkar og framleiðslueldhúsi á Vestfjörðum starfar framúrskarandi fólk sem hefur ástríðu fyrir því að framleiða hágæða matvæli sem skaða ekki umhverfi sitt. Allt starfsfólk Fisherman er meðvitað um umhverfisstefnu fyrirtækisins og starfar eftir henni. Öll raforka og vatn sem Fisherman þarf í framleiðslu sína er sótt í nærumhverfi okkar. Rafmagnið er framleitt með vatnsaflsvirkjun úr Vestjarðargöngunum, heita vatnið kemur úr laugum og kalda vatnið sækjum við í fallið fyrir ofan okkur.

Öll okkar vöruþróun byggist á því að stíga enn stærri skref inn í umhverfisvæna framtíð. Við erum því alltaf að leita af leiðum til að bjóða upp á fyrsta flokks afurðir með sem lægst umhverfisspor. Nýju pakkningar okkar úr pappír eru skýr merki um þá umhverfisstefnum sem við störfum eftir hjá Fisherman og endurspegla þá sýn sem við höfum þegar kemur að umhverfismálum.

Pakkningar Fisherman eru gerðar úr FSC umhverfisvottuðum pappír og prentaðar í Svansvottaðari prentsmiðju. Með því að hafa umbúðir okkar að mestu úr pappír getum við dregið verulega úr plastnotkun. Til að mynda eru aðeins 4gr. af plasti í umbúðum okkar fyrir reyktan og grafinn ASC vottaðan fisk.

Fullvinnsla sjávarafurða.

Fisherman er aðeins einn hlekkur í mikilvægri keðju í fullvinnslu og nýtingu á sjávarafurðum. Fisherman fullvinnur fisk í fallegar neytendapakkningar en það hráefni sem við getum ekki nýtt, líkt og hausa, bein og annan afsskurð er fullnýtt hjá öðru fyrirtæki í þorpinu. Þannig tekst okkur að fullvinna allan þann fisk sem kemur að landi.

Hvað getur þú gert?

Fyrir okkur er mikilvægt að hugsa allt framleiðsluferlið frá hafi og upp á disk hjá þér með umhverfissjónarmið að leiðarljósi. Með því móti reynum við að lágmarka vistspor okkar í framleiðsluferlinu.

Að lokum má ekki gleyma því að neytendur hafa hlutverk og ábyrgð í umhverfisstefnu okkar. Þeirra framlag skiptir ekki minna máli en okkar. Neytendur verða að vera meðvitaðir um þær vörur sem þeir kaupa og velja umhverfisvæna kosti, svo er mikilvægt að neytendur flokki og endurvinni allar umbúðir og lágmarki matarsóun.

Saman getum við verndað og varðveitt umhverfi okkar og náttúru með sjálfbærum og ábyrgum hætti.

Search